Fara beint í efni
LögfræðiþjónustaAkraness Hafa samband

Erfðamál

Aðstoð við dánarbússkipti, hvort sem um ræðir einkaskipti eða opinber skipti, erfðaskrár og almenn ráðgjöf. Þegar ástvinur fellur frá þarf að ganga frá dánarbúinu og við aðstoðum þig við skiptin.

Þjónustan

Helstu verkefni

Dánarbússkipti

Ráðgjöf og aðstoð fyrir erfingja, hvort sem búinu er skipt í einkaskiptum eða opinberum skiptum.

Erfðaskrár

Gerð og yfirferð erfðaskráa innan þeirra marka sem erfðalög setja.

Almenn ráðgjöf

Ráðgjöf um erfðarétt, til dæmis um rétt maka og barna til arfs og um ráðstöfun eigna.

Algengar spurningar

Um erfðamál

Hver er munurinn á einkaskiptum og opinberum skiptum?

Við einkaskipti veitir sýslumaður erfingjum leyfi til að skipta búinu sjálfir að uppfylltum skilyrðum. Erfingjar taka á sig sjálfskuldarábyrgð á skuldbindingum búsins. Ábyrgðin getur því náð umfram arfinn. Við opinber skipti skipar héraðsdómari skiptastjóra sem annast skiptin. Erfingi getur óskað eftir opinberum skiptum ef lagaskilyrði eru uppfyllt.

Þarf ég erfðaskrá?

Án erfðaskrár fer um arf eftir erfðalögum. Ef maki eða niðjar, það er börn eða aðrir afkomendur, taka arf eftir þig máttu ráðstafa allt að þriðjungi eigna þinna með erfðaskrá. Ef enginn þeirra tekur arf gildir þessi takmörkun ekki. Erfðaskrá þarf þó að uppfylla skilyrði erfðalaga.

Get ég fengið aðstoð þótt ég viti ekki hver staða búsins er?

Já. Við förum yfir gögnin með þér, til dæmis eignir, skuldir og erfðaskrá ef hún er til, og útskýrir hvaða leiðir eru færar.

Akranesvitar á Breiðinni við Akranes

Lögfræðiþjónusta á Akranesi frá 2011

Akranesvitar á Breiðinni

Hafa samband

Fyrsta viðtal er án endurgjalds

Hringdu eða sendu fyrirspurn. Fyrirspurn felur ekki í sér að við höfum tekið málið að okkur.