Fara beint í efni
LögfræðiþjónustaAkraness Hafa samband

Lögfræðiþjónusta fyrir fyrirtæki

Aðstoð við stofnun félaga, hluthafasamninga, samningagerð og lögfræðileg álitaefni í rekstri. Þjónustan hentar jafnt einyrkjum og litlum fyrirtækjum sem stærri félögum.

Þjónustan

Helstu verkefni

Stofnun félaga

Ráðgjöf um val á rekstrarformi og aðstoð við stofnun einkahlutafélaga og annarra félaga.

Hluthafasamningar

Gerð og yfirferð samninga milli eigenda, til dæmis um ákvarðanatöku, sölu hluta og útgöngu úr félagi.

Álitaefni í rekstri

Lögfræðiráðgjöf um samninga og önnur lögfræðileg álitaefni í daglegum rekstri.

Algengar spurningar

Um lögfræðiþjónustu fyrir fyrirtæki

Hentar þjónustan litlum fyrirtækjum?

Já. Einyrkjar og lítil fyrirtæki geta leitað ráðgjafar ekki síður en stærri fyrirtæki.

Hvaða rekstrarform hentar mér?

Algeng rekstrarform eru einkahlutafélag, sameignarfélag og rekstur á eigin kennitölu. Við förum yfir kosti og galla hvers forms, til dæmis með tilliti til ábyrgðar eigenda.

Þarf ég hluthafasamning?

Lög krefjast þess ekki, en hluthafasamningur getur skýrt réttindi og skyldur eigenda, til dæmis um ákvarðanir, sölu hluta og útgöngu úr félagi.

Akranesvitar á Breiðinni við Akranes

Lögfræðiþjónusta á Akranesi frá 2011

Akranesvitar á Breiðinni

Hafa samband

Fyrsta viðtal er án endurgjalds

Hringdu eða sendu fyrirspurn. Fyrirspurn felur ekki í sér að við höfum tekið málið að okkur.