Fara beint í efni
LögfræðiþjónustaAkraness Hafa samband

Innheimtumál

Aðstoð við innheimtu krafna fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við aðstoðum einnig þá sem fá innheimtubréf og vilja vita stöðu sína.

Þjónustan

Helstu verkefni

Innheimta krafna

Innheimta ógreiddra reikninga og annarra fjárkrafna fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Greiðslusamkomulag

Aðstoð við að ná samkomulagi um greiðslu áður en málið fer lengra.

Málshöfðun og aðför

Málshöfðun þegar samkomulag næst ekki og aðstoð við að fylgja dómi eftir.

Algengar spurningar

Um innheimtumál

Hvað gerist ef skuldari greiðir ekki?

Við metum næstu skref út frá kröfunni og gögnunum. Til greina geta komið greiðslusamkomulag eða málshöfðun. Fjárnám, það er aðför í eignum skuldara, krefst aðfararheimildar, til dæmis dóms eða dómsáttar. Sýslumaður annast fjárnám að uppfylltum lagaskilyrðum.

Hvað á ég að gera ef ég fæ innheimtubréf?

Farðu yfir hvort krafan sé réttmæt og fjárhæðin rétt. Hafðu samband áður en frestur í bréfinu rennur út svo hægt sé að meta stöðuna.

Fyrnast kröfur?

Já. Kröfur fyrnast samkvæmt lögum um fyrningu kröfuréttinda, oftast á fjórum árum, en fyrningarfrestur getur verið annar eftir tegund kröfu.

Akranesvitar á Breiðinni við Akranes

Lögfræðiþjónusta á Akranesi frá 2011

Akranesvitar á Breiðinni

Hafa samband

Fyrsta viðtal er án endurgjalds

Hringdu eða sendu fyrirspurn. Fyrirspurn felur ekki í sér að við höfum tekið málið að okkur.