Fara beint í efni
LögfræðiþjónustaAkraness Hafa samband

Málarekstur fyrir dómstólum og í stjórnsýslumálum

Málssókn og málsvörn fyrir dómstólum og í stjórnsýslumálum. Við gætum hagsmuna þinna hvort sem þú vilt höfða mál, þarft að verjast kröfu eða vilt leita réttar þíns gagnvart stjórnvaldi.

Þjónustan

Helstu verkefni

Málssókn

Undirbúningur og rekstur dómsmáls fyrir þann sem vill sækja rétt sinn, frá kröfubréfi til dóms.

Málsvörn

Vörn fyrir þann sem krafinn er um greiðslu eða önnur réttindi, meðal annars þegar stefna berst.

Stjórnsýslumál

Aðstoð í samskiptum við stjórnvöld, til dæmis við andmæli, kæru til æðra stjórnvalds eða úrskurðarnefndar.

Algengar spurningar

Um málarekstur

Þarf ég lögmann til að fara með mál fyrir dómi?

Aðili einkamáls getur að jafnaði flutt mál sitt sjálfur ef hann hefur til þess hæfi, en dómari getur lagt fyrir hann að ráða hæfan umboðsmann. Málarekstur er margþættur og frestir skipta miklu máli. Við getum undirbúið gögn, sett fram kröfur og flutt málið fyrir þig.

Hvenær ætti ég að leita ráða eftir að stefna berst?

Strax. Í stefnu kemur fram hvenær málið verður þingfest. Ef ekki er brugðist við getur dómur gengið stefnanda í vil án þess að stefndi hafi komið vörnum að. Við getum farið yfir frestina með þér.

Hvað er stjórnsýslumál?

Stjórnsýslumál er mál þar sem stjórnvald, til dæmis ríkisstofnun eða sveitarfélag, tekur ákvörðun um rétt þinn eða skyldu. Oft er hægt að kæra slíka ákvörðun til æðra stjórnvalds eða úrskurðarnefndar innan tiltekins frests.

Akranesvitar á Breiðinni við Akranes

Lögfræðiþjónusta á Akranesi frá 2011

Akranesvitar á Breiðinni

Hafa samband

Fyrsta viðtal er án endurgjalds

Hringdu eða sendu fyrirspurn. Fyrirspurn felur ekki í sér að við höfum tekið málið að okkur.