Fara beint í efni
LögfræðiþjónustaAkraness Hafa samband

Fjölskyldumál

Aðstoð við gerð sambúðarsamninga eða kaupmála. Hagsmunagæsla vegna skilnaðarmála og í deilum er snúa að forsjá og/eða umgengni barna.

Þjónustan

Helstu verkefni

Kaupmálar og sambúðarsamningar

Gerð og yfirferð samninga um fjárhagsleg málefni hjóna og sambúðarfólks.

Skilnaðarmál

Hagsmunagæsla vegna skilnaðar, meðal annars við fjárskipti.

Forsjá og umgengni

Aðstoð í deilum um forsjá barna, lögheimili og umgengni.

Algengar spurningar

Um fjölskyldumál

Hvað er kaupmáli?

Kaupmáli er skriflegur samningur hjóna eða verðandi hjóna um fjármál þeirra, til dæmis um að tilteknar eignir verði séreign. Kaupmála þarf að skrá hjá sýslumanni.

Hver er munurinn á forsjá og umgengni?

Forsjá felur í sér umönnun og ákvarðanir um persónulega hagi barns. Við sameiginlega forsjá taka foreldrar meiri háttar ákvarðanir saman, með lögbundnum undantekningum. Umgengni felur í sér samveru og önnur samskipti við það foreldri sem barnið býr ekki hjá, enda samræmist hún hagsmunum barnsins.

Hvenær ætti ég að leita ráða vegna skilnaðar?

Helst áður en ákvarðanir eru teknar um fjárskipti, forsjá eða umgengni. Við förum yfir stöðuna með þér og útskýrir hvaða leiðir eru færar.

Akranesvitar á Breiðinni við Akranes

Lögfræðiþjónusta á Akranesi frá 2011

Akranesvitar á Breiðinni

Hafa samband

Fyrsta viðtal er án endurgjalds

Hringdu eða sendu fyrirspurn. Fyrirspurn felur ekki í sér að við höfum tekið málið að okkur.