Kaup og sala
Kauptilboð, kaupsamningar og afsöl yfirfarin áður en skrifað er undir, fyrir kaupendur jafnt sem seljendur.
Aðstoð við kaupendur og seljendur fasteigna vegna ágreinings um galla, leigu eða vanefndir. Kauptilboð getur orðið bindandi þegar það er samþykkt með undirskrift. Við förum yfir tilboðið og skilmála þess með þér áður en þú gerir eða samþykkir það.
Þjónustan
Kauptilboð, kaupsamningar og afsöl yfirfarin áður en skrifað er undir, fyrir kaupendur jafnt sem seljendur.
Gerð og yfirferð leigusamninga fyrir leigjendur og leigusala, hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði eða atvinnuhúsnæði.
Aðstoð þegar kaupanda og seljanda greinir á, til dæmis um galla á eign eða vanefndir á greiðslum.
Algengar spurningar
Fasteignasala ber lögum samkvæmt að gæta hagsmuna bæði kaupanda og seljanda. Ef þú felur okkur að gæta hagsmuna þinna getum við farið yfir skjölin með þér áður en þú gerir eða samþykkir kauptilboð.
Áður en þú gerir eða samþykkir kauptilboð. Skriflegt tilboð verður bindandi þegar viðtakandi samþykkir það með undirskrift, ef það felur í sér greiðslu tilgreinds kaupverðs og afhendingu eignarinnar. Fyrirvarar í tilboðinu geta haft áhrif á skuldbindinguna.
Fyrsta viðtal er án endurgjalds og án skuldbindingar. Kostnaður við frekari vinnu fer eftir eðli og umfangi verkefnisins og samið er um gjaldtöku áður en sú vinna hefst.

Lögfræðiþjónusta á Akranesi frá 2011
Hafa samband
Hringdu eða sendu fyrirspurn. Fyrirspurn felur ekki í sér að við höfum tekið málið að okkur.